Góður svefn er einn mikilvægasti þátturinn í almennri heilsu og vellíðan. Á breytingaskeiði upplifa margar konur svefntruflanir sem geta haft víðtæk áhrif á daglega líðan og lífsgæði. Skilningur á þessum breytingum getur verið fyrsta skrefið í átt að betri nætursvefni og aukinni orku.

Breytingaskeið og svefntruflanir – af hverju?

Þegar konur ganga í gegnum breytingaskeið breytist hormónajafnvægi líkamans umtalsvert. Estrógen og prógesterón, sem hafa áhrif á svefnhringrás og hitastjórnun líkamans, sveiflast og minnka smám saman. Þessar breytingar geta haft bein áhrif á svefngæði og svefnmynstur.

Algengustu svefnvandamál sem konur lýsa á þessum tíma eru:

  • Erfiðleikar með að sofna
  • Tíðar uppvaknanir um miðja nótt
  • Hitakóf sem truflar svefn
  • Vakna snemma og geta ekki sofnað aftur
  • Minni djúpsvefn og óendurnærandi svefn

Áhrif svefntruflana á heilsu og líðan

Svefn er tími endurnýjunar og viðgerða fyrir líkamann. Á meðan við sofum á sér stað mikilvægur endurbótaferill í öllum kerfum líkamans. Án nægilegs svefns getur heilsan liðið fyrir það á margvíslegan hátt:

Ljósmynd/Unsplash/Europeana

Ljósmynd/Unsplash/Europeana

  • Minni orka og aukin þreyta yfir daginn
  • Áhrif á skap og mótstöðu gegn álagi
  • Skert einbeiting og minni
  • Breytt matarlyst og efnaskipti
  • Veikara ónæmiskerfi
  • Aukin bólguviðbrögð í líkamanum

Næringarefni sem styðja við heilbrigðan svefn

Ákveðin næringarefni gegna mikilvægu hlutverki þegar kemur að svefni og slökun.

Magnesíum – vöðvaslökun og taugajafnvægi

Magnesíum stuðlar að eðlilegri starfsemi taugakerfisins og eðlilegri vöðvastarfsemi og getur einnig stutt við dýpri og rólegri svefn.

Magnesíum Bisglycinate er form magnesíums sem frásogast vel og þolist almennt vel af meltingarkerfinu, sem gerir það að góðum valkosti til að styðja við svefn og slökun.

B-vítamín – stuðningur við taugakerfið

B-vítamín, sérstaklega B6, stuðla að eðlilegri starfsemi taugakerfisins og eðlilegri andlegri starfsemi.

Náttúrulegar leiðir til að bæta svefn á breytingaskeiði

Auk þess að huga að næringu og bætiefnum, geta einfaldar breytingar á lífsvenjum haft jákvæð áhrif á svefngæði:

  1. Regluleg hreyfing fyrir betri svefn

Regluleg hreyfing getur stutt við eðlilegt svefnmynstur og aukið svefngæði. Hófleg hreyfing eins og daglegur göngutúr getur einnig hjálpað til við að draga úr svefntruflunum. Best er að forðast erfiðar æfingar rétt fyrir háttatíma.

  1. Skapa slakandi kvöldrútínu

Heilinn þarf tíma til að undirbúa sig fyrir svefn. Með því að þróa slakandi og nærandi rútínu sem endurtekin er kvöld eftir kvöld gefur þú líkamanum og heilanum skýr skilaboð um að svefntími sé að nálgast.

Slakandi kvöldrútína gæti falið í sér:

  • Slökunaræfingar eða létta teygju
  • Lestur eða hlustun á róandi tónlist
  • Heitt bað eða sturtu
  • Sleppa skjánotkun
  • Að taka huemeno® Magnesíum Bisglycinate
  1. Hitakóf og svefn

Fyrir margar konur á breytingaskeiði geta hitakóf verið ein helsta orsök svefntruflana. Nokkur ráð sem geta hjálpað:

  • Halda svefnherberginu svölu (16-18°C)
  • Nota lag-skiptingu á rúmfötum til að auðvelda hitastjórnun
  • Nota náttföt úr náttúrulegum efnum sem anda vel
  • Hafa vatnsglas við hönd
  1. Varast örvandi efni

Kaffi, te, kóladrykkir og súkkulaði geta innihaldið koffín sem getur haft áhrif á svefn. Á sama hátt getur áfengi, þó það geti aukið syfju í fyrstu, leitt til léttari og órólegri og hvíldarminni svefns.

huemeno® vörulínan er hönnuð til að styðja við heilbrigða líkamsstarfsemi á breytingaskeiði með sérstakri áherslu á grunnstoðir heilsu, þar með talið svefn og slökun.

Hvers vegna ættir þú að velja huemeno®  Magnesium Bisglycinate?

Það eru ekki öll form af magnesíum eins – og það getur skipt verulegu máli fyrir virkni og frásog hvaða tegund við veljum. Magnesíum Bisglycinate frá huemeno® er á formi sem frásogast vel og nýtist því líkamanum sérstaklega vel, er milt og þolist vel, jafnvel hjá þeim sem eru viðkvæmir í maga og þola mögulega illa önnur form af magnesíum.

Magnesíum tekur þátt í fjölmörgum ferlum líkamans sem snerta orku, vöðvastarfsemi, bein- og tannheilsu og andlega líðan. Það getur dregið úr þreytu og orkuleysi, stutt við eðlilega orkuvinnslu og hjálpað líkamanum að viðhalda vökvajafnvægi.

Magnesíum styður einnig við eðlilega starfsemi taugakerfis og vöðva, sem getur skipt máli fyrir líkamlega slökun og hvíld.

huemeno® Magnesium Bisglycinate 

– hluti af nærandi kvöldrútínu

Margar konur kjósa að taka huemeno® Magnesium Bisglycinate að kvöldi til, sem hluta af rólegri kvöldrútínu. Þar sem magnesíum stuðlar að eðlilegri vöðvastarfsemi og starfsemi taugakerfisins getur það verið einföld leið til að styðja við líkamlega slökun og undirbúning fyrir svefn.

huemeno® Magnesium Bisglycinate er fæðubótarefni sem má taka með öðrum huemeno® vörum og er tilvalið fyrir konur á og í kringum breytingaskeiðið – og fyrir árin sem fylgja.

huemeno® vörurnar eru góð leið til að styðja við grunnstoðir heilsunnar, þær eru með fáum innihaldsefnum, en með fjölþætta virkni.

huemeno® Magnesium Bisglycinate er sérstaklega gagnlegt sem hluti af kvöldrútínu, þar sem magnesíum stuðlar að eðlilegri starfsemi taugakerfisins og vöðvastarfsemi, sem getur hjálpað líkamanum að ná dýpri slökun.

Að viðhalda góðum svefnvenjum á breytingaskeiði getur verið áskorun, en með réttri næringu og réttum bætiefnum og heilbrigðum lífsvenjum er hægt að bæta svefngæði umtalsvert. Með því að huga sérstaklega að svefni á þessu mikilvæga tímabili í lífi þínu ertu að leggja grunn að betri orku, jafnvægi og heilsu til framtíðar.

Fyrir líðan í dag – og heilsu til framtíðar

Góð heilsa byggir á góðum daglegum venjum sem hafa raunveruleg áhrif. Fjölbreytt fæða, hreyfing við hæfi og góður svefn eru grundvallaratriði sem er mikilvægt að huga að á öllum skeiðum lífsins, ekki síst á breytingaskeiðinu.

Heildrænni nálgun með huemeno®

huemeno® vörulínan er stoð sem byggir grunn að betri heilsu, orku og vellíðan til framtíðar.

huemeno® Me, inniheldur sérstakra blöndu af góðgerlum, forgerlum og B-vítamínum. Góðgerlarstofnarnir í huemeno® Me hafa verið valdir til að styðja við meltingu og efnaskiptaheilsu og þarmaflóruna, einnig flóruna í leggöngum.

huemeno® Magnesium Bisglycinate styður við eðlilega starfsemi taugakerfisins og andlegt jafnvægi, sem getur verið sérstaklega mikilvægt á tímum breytinga.

huemeno® D3 & K2 styður við viðhald eðlilegra beina en D-vítamín stuðlar einnig að eðlilegri starfsemi ónæmiskerfisins.

Birt í samstarfi við huemeno®