Það byrjar oft eiginlega án viðvörunar, breytingaskeiðið, segir hún. Ekki með einu skýru einkenni, heldur þeirri tilfinningu að líkaminn sé farinn að svara öðruvísi en áður. Svefninn ekki jafn djúpur. Orkan ekki jafn stöðug. Líkaminn svarar ekki alveg eins og áður, þó ekkert hafi breyst á yfirborðinu.
Þorbjörg Hafsteinsdóttir hefur unnið með konum á þessum tímamótum í mörg ár. Hún segir að þessi upplifun sé bæði algeng og fullkomlega eðlileg, en allt of sjaldan veitum við henni verðskuldaða athygli eða ræðum hana opinskátt.
„Það sem mér finnst vanta í umræðuna er kannski aðeins meiri yfirvegun. Breytingaskeiðið er oft sett fram eins og eitthvað sem þurfi að komast í gegnum, eða jafnvel stöðva í einhverjum tilfellum, helst strax. En þetta er nýr kafli og líkaminn er einfaldlega að kalla á aðra nálgun og annan takt.“
Hún segir að margar konur finni að þó þær haldi áfram að gera „allt rétt“, finna þær samt að líkaminn bregst öðruvísi við. Mataræðið er eins og áður, hreyfingin líka, en líkaminn lætur ekki að stjórn eins og áður.
Það getur verið ruglandi og jafnvel pirrandi þegar engin augljós skýring virðist vera til staðar. Fyrir margar okkar getur þetta jafnvel virst eins og við séum að missa tökin og fáum ekkert að gert, sama hvað við reynum að “gera allt rétt” og eins og áður.
Þegar líkaminn fer eigin leiðir
Ein þeirra óvelkomnu breytinga sem oft koma upp er aukin fitusöfnun á kviðsvæði. Þorbjörg segir að það sé of einfalt að horfa á það sem útlitsmál eitt og sér.
„Þarna eru efnaskipti, hormón og streituviðbrögð að breytast samtímis, og eru í raun vísbending um þær innri breytingar sem eru að eiga sér stað. Þetta er ekki eitthvað sem þú leysir með því einu að borða minna eða hreyfa þig meira. Líkaminn gæti þarfnast öðruvísi stuðnings.“
Í því samhengi nefnir hún þarmaflóruna, lykilþátt sem fái sjaldan næga athygli. Hún tengist ekki aðeins meltingu heldur líka orku, ónæmiskerfi og efnaskiptajafnvægi og jafnvel andlegri líðan. Rannsóknir benda til þess að þarmaflóran breytist á þessum árum samhliða hormónabreytingum og áhrifin geti verið víðtækari en flestir gera sér grein fyrir.
„Við tölum mikið um hormón, og það er auðvitað mikilvægt. En þarmaflóran er eins og ósýnilega kerfið á bak við tjöldin, nokkurskonar ósýnilegur áhrifavaldur, eins og ég segi oft. Hún hefur áhrif á svo marga þætti heilsu okkar.“
Eitt hylki, margþættur stuðningur
Þegar rætt er um hvað hún geri sjálf til að styðja við þarmaflóruna og heilsuna almennt nefnir Þorbjörg huemeno® Me, aðalvöru huemeno® línunnar.
Hún segir að hún gefi þarmaflórunni einn meiri gaum nú en kannski fyrr þó hún hafi lengi haft hana í forgunni þegar kemur að því að hlúa að eigin líkama og líðan.
„Ég veit auðvitað, eins og við margar, að meltingin skiptir máli. Þegar hún er í lagi líður okkur betur. En við getum líka haft áhrif á orkuna, efnaskiptin og hvernig líkaminn dreifir fitu með því að styðja þarmaflóruna. huemeno® Me er eina varan sem ég hef prófað þar sem ég finn raunverulegan mun á fleiri en einum þætti samtímis.“
huemeno® Me inniheldur þrjá klínískt prófaða SynbÆctive® góðgerlastofna frá SynBalance Srl á Ítalíu sem styðja við þarmaflóru, meltingu, efnaskipti og jafnvægi í flóru legganga, ásamt forgerlum og B1 og B6 vítamínum sem styðja við orkuvinnslu og taugakerfi.
huemeno® Me hefur þannig ekki eingöngu áhrif á meltingu, heldur styður einnig á tengsl þarmaflóru og efnaskipta. Árið 2021 hlaut SynBalance NutraIngredients Awards verðlaunin “Ingredient of the Year” fyrir innihaldsefni í flokki þyngdarstjórnunar, fyrir þessa tilteknu blöndu gerla sem finna má í huemeno® Me. Rannsóknir hafa bent til þess að blandan geti haft áhrif á meltingu, örveruflóruna og efnaskiptaheilsu, þar á meðal á þætti eins og mittismál og söfnun kviðfitu.
Þetta dýpkar þá mynd sem Þorbjörg lýsir, að þarmaflóran geti haft áhrif langt út fyrir meltinguna sjálfa, meðal annars á það hvernig líkaminn vinnur og nýtir orku.
Þorbjörg segir að fyrir sig hafi áhrifin hafi komið hægt en stöðugt og bætir við að það skipti hana máli að varan innihaldi hvorki hormón né hormónalík efni og henti því konum hvort sem þær nota hormónauppbót eða ekki.
Nóttin sem breytti deginum
Á sama tíma segir Þorbjörg að hún hafi uppgötvað annað sem hún hefði kannski mátt prófa fyrr.
„Hefurðu prófað að sofa vel?! Ég hélt að ég svæfi nú oftast ágætlega. En eftir að ég prófaði huemeno® Magnesium Bisglycinate áttaði ég mig eiginlega muninn. Svefninn varð dýpri og ég vaknaði ekki lengur um klukkan fjögur án nokkurrar ástæðu.“
Hún segir að betri svefn hafi haft keðjuverkandi áhrif fyrir sig. Meiri og jafnari orka yfir daginn, betra skap og meiri þolinmæði, bæði gagnvart sjálfri sér og öðrum, segir hún og brosir.
Í dag er huemeno® línan, huemeno® Me, huemeno®Magnesium Bisglycinate og huemeno® D3 & K2, hluti af hennar daglegu rútínu til að styðja við orku, jafnvægi og hvíld og til að styðja og styrkja beinin sem hún segir eitthvað sem við ættum að allar að byrja að huga að töluvert fyrr, þegar við erum yngri svo við getum búið að því á árunum í kringum og ekki síst eftir breytingaskeiðið.
Einfalt og skýrt
Þorbjörg segir að hún velji markvisst vörur sem styðja við fleiri en einn þátt í einu, án þess að flækja hlutina.
„Við eigum ekki að upplifa að við þurfum ekki að berjast við líkamann. Við ættum að reyna að hlusta á hann og styðja hann þar sem hann er staddur. Það er í raun það sem þetta snýst um, að sýna okkur sjálfum meiri mildi og leyfa þessum nýja takti sem lífið gefur okkur að verða eitthvað sem við getum unnið með, ekki gegn.
Kannski er það hægara sagt en gert, en fyrsta skrefið er alltaf meðvitund, að staldra við, hlusta á eigin líðan og skynja hvers við þörfnumst. Síðan getum við farið að gera litlar breytingar í daglegu lífi sem styðja við þetta, eins og að setja svefninn í forgang og hlúa betur að honum, og einfaldlega velja frekar það sem við finnum að nærir okkur, bæði í lífinu sjálfu, í leik og starfi, og í því sem við setjum ofan í okkur og bætir við hversu mikilvægt er að konur á breytingaskeiði hugi að því að fá nægilegt prótein í hverri máltíð.
„Það sem margar konur gera sér ekki grein fyrir,“ segir Þorbjörg, „er hversu miklu máli próteinið skiptir á breytingaskeiði og eftir það. Eftir því sem við eldumst þurfum við að hafa meira fyrir því að viðhalda vöðvamassanum og á breytingaskeiðinu verður þetta enn mikilvægara. Vöðvamassinn heldur efnaskiptunum virkum, og nægt prótein hjálpar okkur að halda honum – það er eitt af lykilatriðunum fyrir orku, jafnvægi og heilsu á þessum árum.“
huemeno® vörurnar fást í apótekum og eru byggðar á þeirri hugsjón að styðja við grunnstoðir heilsunnar með fáum en vel völdum innihaldsefnum, þar sem hvert innihaldsefni hefur skýran tilgang og er notað í skömmtum sem styðja markmið vörunnar.
Þær innihalda hvorki hormóna né hormónalík efni, svo sem plöntuhormóna (phytoestrogens) eða jurtaútdrætti sem líkja eftir áhrifum estrógens eða annarra hormóna og geta því hentað bæði sem sjálfstæður stuðningur og sem hluti af breiðari nálgun samhliða hormónauppbót eða öðrum úrræðum, allt eftir því sem hver kona kýs.
MTick® vottaðar vörur
huemeno® er stolt af því að vera fyrst íslenskra vörumerkja hluti af alþjóðlegri hreyfingu sem hefur það að markmiði að auka samtal og umræðu um breytingaskeiðið, og gera það sýnilegt og þýðingarmikið. Vörurnar okkar eru vottaðar með MTick® – fyrsta alþjóðlega tákninu sem sýnir að vara teljist hentug fyrir konur á breytingaskeiði.
Að baki MTick® stendur GenM®, félag sem hefur gjörbreytt samtalinu um breytingaskeiðið í Bretlandi og nú víðar.
Kynning unnin í samstarfi við huemeno ehf./ Myndir: huemeno® og úr einkasafni
