Konudagurinn er fallegur dagur tileinkaður konum. Hann er líka tilvalinn dagur til að staldra við og huga að því hvernig okkur líður í raun og veru, hvort líkaminn sé að senda okkur tiltekin skilaboð og hvort eitthvað kalli á meiri athygli eða skoðun.
„Hjá konum er konudagurinn auðvitað alla daga, allan ársins hring,“ segir Þorbjörg Hafsteinsdóttir, næringarþerapisti og hjúkrunarfræðingur sem hefur undanfarin ár lagt aukna áherslu á breytingaskeið kvenna í vinnu sinni sem fyrirlesari og ráðgjafi, bæði á Íslandi og í Danmörku þar sem hún býr. „Og eins undarlega og það kann að hljóma, finnst mér afar mikilvægt að minna okkur konur á að ‘muna’ eftir okkur sjálfum. Gefa líðan okkar meðvitað gaum og reyna að mæta þeim breytingum sem við upplifum í líkamanum, sérstaklega í kringum breytingaskeiðið, með mildi og skilningi.“
Konudagurinn er góð áminning um að taka pláss
Þorbjörg hefur haldið fjölmarga fyrirlestra í fyrirtækjum um breytingaskeið kvenna og segir að áhugi og vilji atvinnulífsins til að vera hluti af samtalinu skipti máli. „Það gleður mig að finna að áhugi samfélagsins á að auka skilning og umræðu í kringum breytingaskeiðið er að aukast, þó enn sé þörf á meiri vinnu, upplýsingum og samtali. Ég finn það meðal annars á því að spurningarnar sem ég fæ eru orðnar betri og skýrari, og við gerum okkur betur grein fyrir því hversu einstaklingsbundin upplifun kvenna á breytingaskeiðinu er og hversu fjölbreytt einkenni þess geta verið.“
Kvenheilsa á ekki að vera óskýrt dulkóðað mál sem erfitt er að skilja. Þorbjörg nefnir að konudagurinn geti verið góð áminning til okkar um að taka meira pláss, líka í samtalinu um heilsu okkar og líðan. “Við ættum að vera duglegar spyrja spurninga, ræða málin, deila reynslu okkar og leita svara. Krefjast skýrleika” segir hún.
Þarmaflóran – ósýnilegur áhrifavaldur í lífi okkar
Á breytingaskeiði eiga sér stað fjölmargar breytingar í líkamanum – sumar greinilegar, aðrar minna sýnilegar. Einn af þáttunum sem oft fær of litla athygli er einmitt þarmaflóran og hvernig hún skiptir einnig máli á þessu tímabili.
Þarmaflóran, sem einnig er kölluð örveruflóra, er eitt flóknasta lífkerfi líkamans og gegnir lykilhlutverki í heilsu okkar. Hún samanstendur af þúsundum tegunda örvera sem lifa í meltingarveginum og vinna saman í flóknu samspili. Þessar örverur, sem telja milljarða, geta haft áhrif á meltingu, upptöku næringarefna, efnaskipti, ónæmiskerfið og jafnvel taugakerfið og andlega heilsu og skap.
Þessi „ósýnilegi heimur“ hefur vakið mikla athygli vísindamanna á síðustu árum vegna víðtækra áhrifa hans á allt líkamsstarfið. Þegar flóran er í jafnvægi styður hún líkamann á margvíslegan hátt. Þegar jafnvægi hennar raskast geta áhrifin orðið margþætt og borið með sér óþægindi, oft alls ótengd meltingarkerfinu sjálfu.
Á þessum árum getur margt breyst. Svefninn getur orðið viðkvæmari, streita getur setið dýpra og meltingin getur svarað öðruvísi. Blóðsykur og matarlyst geta breyst og margar konur taka eftir breytingum á líkamsamsetningu, meðal annars aukinni fitusöfnun á kviðsvæði. Þetta er ekki merki um að eitthvað sé „að“, heldur getur það verið merki um að líkaminn sé að biðja um nýjan stuðning og aðra nálgun.
Þorbjörg segir heildarmyndina skipta máli: svefn, næring, hreyfing, streita og einnig þarmaflóran. “Allt grunnstoðir sem við getum styrkt með raunhæfum skrefum og byggt upp styðjandi rútínu í daglegu lífi. Við ættum einnig að huga að félagslega þættinum og hlúa að nærandi samskiptum, samveru og ekki síst útiveru”.
huemeno® Me: stoð á breytingaskeiði og eftir það
Kvenheilsa er hugtak sem setur konur í forgrunn og huemeno® er íslensk heilsuvörulína sem gerir það einnig, með sérstakri áherslu á árin í kringum breytingaskeiðið.
Aðalvaran í huemeno® línunni, huemeno® Me, er fjölvirkur stuðningur fyrir konur á breytingaskeiði og á árunum sem fylgja. Varan var þróuð til að styðja við grunnþætti heilsunnar með fáum, völdum innihaldsefnum og skilgreindum SynbÆctive® góðgerlastofnum í virkum skömmtum.
Árið 2021 hlaut SynBalance NutraIngredients Awards verðlaunin „Ingredient of the Year – Weight Management“ fyrir innihaldsefni í flokki þyngdarstjórnunar, fyrir þessa tilteknu blöndu gerla sem finna má í huemeno® Me. Rannsóknir hafa bent til þess að blandan geti haft áhrif á örveruflóruna og efnaskiptaheilsu, þar á meðal á þætti eins og mittismál og söfnun kviðfitu.
Markmiðið með huemeno® Me er stuðningur við jafnvægi í þarmaflórunni og daglega vellíðan, og að styðja við þætti sem geta skipt auknu máli á þessum árum, meðal annars meltingu, efnaskiptaheilsu og viðkvæmt jafnvægi og vellíðan á svæðum eins og leggöngum og þvagfærum.
„Ég finn svo vel hvað huemeno® Me gerir mér gott. Meltingin verður léttari, orkan jafnari og mér líður allri betur. Ég tek huemeno® Me með mér til Danmerkur. Þegar ég fann hvað varan styður vel við mig vildi ég ekki vera án hennar,“ segir Þorbjörg. Hún bætir við að enn sem komið er fáist huemeno® línan ekki í Kaupmannahöfn þar sem hún býr stóran hluta ársins.
huemeno® Me stuðlar að:
- jafnvægi í þarmaflóru og meltingu
• efnaskiptaheilsu og orkuvinnslu
• stuðningi við jafnvægi í örveruflóru á viðkvæmum svæðum, meðal annars í tengslum við legganga og þvagfæri
• minni þreytu og lúa (í tengslum við eðlilega orkuvinnslu)
• eðlilegri starfsemi taugakerfisins
huemeno® vörurnar eru byggðar á þeirri hugsjón að styðja við grunnstoðir heilsunnar með fáum en vel völdum innihaldsefnum, þar sem hvert innihaldsefni hefur skýran tilgang og er notað í skömmtum sem styðja markmið vörunnar.
Þær innihalda hvorki hormóna né hormónalík efni, svo sem plöntuhormóna (phytoestrogens) eða jurtaútdrætti sem líkja eftir áhrifum estrógens eða annarra hormóna og geta því hentað bæði sem sjálfstæður stuðningur og sem hluti af breiðari nálgun samhliða hormónauppbót eða öðrum úrræðum, allt eftir því sem hver kona kýs.
MTick® vottaðar vörur
huemeno® er stolt af því að vera fyrst íslenskra vörumerkja hluti af alþjóðlegri hreyfingu sem hefur það að markmiði að auka samtal og umræðu um breytingaskeiðið, og gera það sýnilegt og þýðingarmikið. Vörurnar okkar eru vottaðar með MTick® – fyrsta alþjóðlega tákninu sem sýnir að vara teljist hentug fyrir konur á breytingaskeiði.
Að baki MTick® stendur GenM®, félag sem hefur gjörbreytt samtalinu um breytingaskeiðið í Bretlandi og nú víðar.
Kynning unnin í samstarfi við huemeno ehf./ Myndir: huemeno® og úr einkasafni
