Það virðist vera að breytingaskeiðið sé loksins farið að fá meira pláss í umræðunni og nú ræða konur það frekar sín á milli, ólíkt því sem kannski áður var og er auðvitað löngu tímabært.

Margar okkar tilheyra kynslóð sem ólst upp við viðhorf til kvenheilsu, þar sem ýmislegt sem fylgdi til að mynda blæðingum og hormónabreytingum, var einfaldlega eitthvað sem átti að takast á við, helst án þess að hafa um það mörg orð og að blæðingar og mögulegir verkir eða óþægindi tengd „þessu mánaðarlega“ væru eitthvað sem fylgdi því bara að vera kona.

Blæðingar áttu þannig ekki að trufla vinnu, skóla, fjölskyldulífið eða dagskrána yfirleitt. Margar okkar urðu þess vegna mjög góðar í því að „power through“; bíta á jaxlinn, gera það sem þurfti og halda áfram.

En hvað gerist þegar kemur svo að breytingaskeiðinu hjá þessari sömu kynslóð? Mögulega fylgir gamla viðhorfið okkur og við höldum áfram að gera það sem við höfum alltaf gert: bíta á jaxlinn og reynum að láta breytta líðan eða jafnvel versnandi heilsu, ekki trufla okkur.

Breytingaskeiðið ætti ekki að krefjast meiri þrautseigju

Konum hefur alla jafna ekki skort seiglu en það sem hefur oft vantað eru upplýsingar, skilningur og samtal. Upplýsingar um hvað getur gerst í líkamanum á árunum fyrir og eftir síðustu blæðingar. Skilningur á því að breytingaskeiðið birtist ekki eins hjá öllum konum og getur haft áhrif á mun fleiri þætti en tíðahringinn einan.

Og samtal. Við vinkonur, maka, fjölskyldu, samstarfsfólk og heilbrigðisstarfsfólk.

Ein stærsta breyting síðustu ára er kannski sú að konur eru farnar að tala meira saman og deila reynslu sinni.

„Ég sef allt í einu illa.“

„Ég get ekki einbeitt mér eins og áður.“

„Mér líður eins og líkaminn minn hafi breyst á einni nóttu.“

„Ég vissi ekki að þetta gæti tengst breytingaskeiðinu.“

Þegar ein kona segir þetta upphátt svarar önnur oft: „Ég líka.“

Það skiptir máli. Ekki vegna þess að allar okkar upplifanir eigi uppruna sinn í breytingaskeiðinu, heldur vegna þess að samtal og aukin þekking gefur okkur möguleika á að spyrja betri spurninga. Fjölbreytt einkenni geta auðvitað átt sér margar orsakir en þau sem eru umtalsverð eða viðvarandi eiga alltaf skilið að fá athygli og skoðun.

Að eitthvað sé hluti af líffræði okkar þýðir ekki að við eigum að afgreiða vanlíðan eða breytingar sem hafa áhrif á líðan og lífsgæði með orðunum „svona er þetta bara“.

Við megum vera sterkar. En styrkur felst ekki alltaf í því að halda áfram eins og ekkert sé.

Stundum felst hann í því að staldra við og spyrja:

Hvað er að gerast hjá mér? Hvað þarf ég að vita? Og hvað gæti hjálpað mér að líða betur?

huemeno® – þróað af konum, fyrir konur

huemeno® er íslenskt vörumerki þróað með breytingaskeiðið í forgrunni.

Á breytingaskeiðinu eiga sér stað raunverulegar líffræðilegar breytingar sem geta meðal annars auk áhrifa á hormónabúskap okkar, snert beinheilsu, efnaskipti, fitudreifingu, slímhúðir, svefn, skap, orku og almenna líðan, bæða líkamlega og andlega.

huemeno® vörunum er ætlað að styrkja undirstöður heilsu okkar með sérvöldum áhrifaríkum innihaldsefnum.

Hvert innihaldsefni hefur verið valið fyrir fjölþætta virkni sína sem styður lykilþætti heilsu kvenna á árunum í kringum breytingaskeiðið – og til að viðhalda og efla orku og vellíðan fyrir árin sem á eftir koma.

En huemeno® vill líka leggja sitt af mörkum til að gera breytingaskeiðið sýnilegra og auka samtalið um það. Þess vegna varð huemeno® fyrsta íslenska vörumerkið til að bera MTick® merkið.

Hvað er MTick®?

MTick® er fyrsta alþjóðlega táknið sem sýnir að vara teljist „menopause friendly“, eða hentug fyrir konur á breytingaskeiði.

Bak við MTick® stendur GenM®, Generation Menopause, alþjóðleg hreyfing sem vinnur með vörumerkjum, smásöluaðilum og atvinnulífinu að því að breyta samtalinu um breytingaskeiðið.

GenM varð til vegna þeirrar staðreyndar að milljónir kvenna um heim allan upplifa breytingaskeiðið sem tíma einsemdar og ósýnileika.

 

Rannsóknir GenM í Bretlandi sýna að:

  • 87% kvenna í breytingaskeiði finnst þær hunsaðar af vörumerkjum og samfélaginu.
  • Aðeins 3 af 48 mögulegum einkennum breytingaskeiðs eru að jafnaði nefnd þegar konur eru spurðar um líðan
  • 94% kvenna vilja sjá skýrari merkingar á vörum sem styðja við einkenni breytingaskeiðsins.

Þessar tölur segja allt sem segja þarf: konur vilja sjá sig og sínar þarfir teknar alvarlega. Þar hefur MTick® hlutverki að gegna og beinir meiri athygli að lífsskeiði sem hefur af miklu leyti verið hjúpað þögn til lengri tíma.

huemeno® Me – þarmaflóran og efnaskiptaheilsa

Eitt af því sem margar konur taka eftir á breytingaskeiðinu er breytt fitudreifing um líkamann og aukin tilhneiging til að safna fitu á kviðsvæði en það er mikilvægt að horfa lengra en á útlit eða mittismál eingöngu.

Efnaskiptaheilsa snýst meðal annars um hvernig líkaminn vinnur úr næringu og nýtir orku, stjórnar blóðsykri og geymir fitu. Þegar hormónastarfsemin breytist, sérstaklega þegar estrógen minnkar, geta orðið breytingar á þessum ferlum og því hvernig og hvar líkaminn geymir fitu.

Þarmaflóran tengist jafnframt fjölmörgum þáttum heilsunnar, meðal annars meltingu, upptöku næringarefna, efnaskiptum og ónæmiskerfinu.

huemeno® Me inniheldur þrjá SynbÆctive® góðgerlastofna frá SynBalance Srl.

Árið 2021 hlaut SynBalance NutraIngredients Awards verðlaunin Ingredient of the Year – Weight Management fyrir þá tilteknu blöndu góðgerla sem er í huemeno® Me í flokki vara sem koma að þyngdarstjórnun.

Góðgerlastofnarnir í huemeno® Me hafa einnig verið rannsakaðir með tilliti til þátta sem tengjast meltingu og jafnvægi flóru í leggöngum.

huemeno® Me inniheldur auk þess inúlín og FOS, svokallaða forgerla, ásamt B1 og B6 vítamínum. B6 stuðlar meðal annars að eðlilegum orkugæfum efnaskiptum, starfsemi taugakerfisins og stjórnun hormónastarfsemi. B1 stuðlar meðal annars að eðlilegum orkugæfum efnaskiptum og starfsemi hjarta og taugakerfis.

huemeno® Vitamin D3 & K2 – beinheilsa til framtíðar

Sumum breytingum á breytingaskeiðinu finnum við strax fyrir. Aðrar gerast meira í kyrrþey.

Á breytingaskeiði getur minnkandi estrógen haft áhrif á beinþéttni.

Með aldrinum minnkar beinþéttni smám saman, en sú þróun getur orðið hraðari þegar estrógenmagn líkamans lækkar í kringum tíðahvörf. Beinin geta því orðið viðkvæmari og þá er mikilvægt að huga að fyrirbyggjandi aðgerðum með góðri og réttri næringu og hreyfingu til að styðja við þau og styrkja.

huemeno® Vitamin D3 & K2 sameinar D3 og K2 vítamín. D vítamín stuðlar meðal annars að eðlilegu frásogi og nýtingu kalks, viðhaldi eðlilegra beina og eðlilegri starfsemi vöðva og ónæmiskerfis. K vítamín stuðlar einnig að viðhaldi eðlilegra beina.

Hér er áherslan því ekki aðeins á hvernig okkur líður í dag, heldur líka heilsuna sem við viljum taka með okkur inn í næstu áratugi.

 

huemeno® Magnesium Bisglycinate – magnesíum með fjölþætt hlutverk

Það eru ekki öll form af magnesíum eins – og það getur skipt verulegu máli fyrir virkni og frásog hvaða tegund við veljum. Magnesíum Bisglycinate frá huemeno® er á formi sem frásog

ast vel og nýtist því líkamanum sérstaklega vel, er milt og þolist vel, jafnvel hjá þeim sem eru viðkvæmir í maga og þola mögulega illa önnur form af magnesíum.

Magnesíum tekur þátt í fjölmörgum ferlum líkamans sem snerta orku, vöðvastarfsemi, bein- og tan

nheilsu og andlega líðan. Það getur dregið úr þreytu og orkuleysi, stutt við eðlilega orkuvinnslu og hjálpað líkamanum að viðhalda vökvajafnvægi.

Magnesíum styður einnig við eðlilega starfsemi taugakerfis og vöðva, sem getur skipt máli fyrir líkamlega slökun og hvíld.

huemeno® Magnesium Bisglycinate sem hluti af nærandi kvöldrútínu

Margar konur kjósa að taka huemeno® Magnesium Bisglycinate að kvöldi til, sem hluta af rólegri kvöldrútínu. Þar sem magnesíum stuðlar að eðlilegri vöðvastarfsemi og starfsemi taugakerfisins getur það verið einföld leið til að styðja við líkamlega slökun og undirbúning fyrir svefn.

Engar tvær konur upplifa breytingaskeiðið á sama hátt

huemeno® vörurnar byggja á þeirri hugsjón að styðja við grunnstoðir heilsunnar með fáum en vel völdum innihaldsefnum.

Í stað flókinna blanda leggur huemeno® áherslu á samsetningar þar sem hvert innihaldsefni hefur skýran tilgang og er notað í skömmtum sem styðja við markmið hverrar vöru fyrir sig.

Það er vert að taka fram að þó huemeno® staðsetji sig nálægt konum á breytingaskeiði og það sé yfirlýst markmið huemeno® að vekja athygli á þessu mikilvæga tímabili í lífi kvenna, henta vörurnar öllum, konum jafnt sem karlmönnum. Þær innihalda hvorki hormóna né hormónalík efni, svo sem plöntuhormóna (e. phytoestrogens) eða jurtaútdrætti sem líkja eftir áhrifum estrógens eða annarra hormóna.

Þær henta því bæði sem sjálfstæður stuðningur og sem hluti af breiðari nálgun samhliða hormónauppbót eða öðrum úrræðum, allt eftir því sem hver kona kýs.

Breytingar á líðan þegar við nálgumst ákveðinn aldur geta tengst breytingaskeiðinu, oft án þess að við gerum okkur grein fyrir því. Einkennin eru gjarnan misskilin, ranggreind eða jafnvel hunsuð.

Þrátt fyrir að breytingaskeiðið snerti helming mannkyns er enn skortur á upplýsingum og tölfræði um áhrif þess á líf og störf kvenna á Íslandi, ekki aðeins hvað varðar heilsu, heldur einnig áhrif á fjölskyldulíf, samskipti og þátttöku á vinnumarkaði.

Margar konur ganga í gegnum þetta tímabil í hljóði, án aðstoðar, skilnings eða úrræða og því tímabært að opna umræðuna svo næsta kynslóð þurfi síður að læra að bíta á jaxlinn og harka af sér, en læri þess í stað að skilja líkama sinn, tala um það sem hún upplifir og leita sér upplýsinga og stuðnings þegar þess þarf.

Kynning unnin í samstarfi við huemeno ehf./ Mynd: AI